Minningarsjóður Bryndísar Klöru

Ársskýrsla 2025

Við heiðrum minningu Bryndísar Klöru með því að efla samkennd í samfélaginu og tryggja öryggi barna.
Þannig látum við kærleikann sigra.

Borgartún 27, 105 Reykjavík
kt. 430924-0600

Örfá orð frá okkur til allra

Ávarp formanns stjórnar MBK

Guðrún Inga Sívertsen

Kæru vinir,

Árið 2025 tók samfélagið sameiginlega ákvörðun um að breyta sárri sorg í afl til góðs. Einstaklingar, skólar, íþróttafélög, fyrirtæki og góðgerðarfélög hafa sýnt okkur að samkennd og kærleikur eru ekki bara hugtök heldur athafnir sem sýnd eru í verki. Á einu ári bárust sjóðnum 324 styrktargreiðslur frá 261 einstaklingi, 15 fyrirtækjum og 48 verkefnum og félagasamtökum, samtals 83,1 millj. kr.

Stærsta verkefni ársins er fjármögnun og undirbúningur Bryndísarhlíðar - sérhæfðrar ofbeldis- og áfallamóttöku fyrir börn og ungmenni, í samstarfi við Landspítala og stjórnvöld. Sjóðurinn er fjárhagslegur bakhjarl verkefnisins og með Kærleiksherferðinni hefur okkur tekist að færast verulega nær markmiðinu um að opna fyrsta úrræði sinnar tegundar á Íslandi.

Samhliða þessu fór fram fyrsta almenna úthlutun sjóðsins þann 2. febrúar 2025, þar sem fimm verkefni hlutu styrki að fjárhæð 4,3 millj. kr. - hvert þeirra valið vegna skýrrar tengingar við tilgang sjóðsins: forvarnir gegn ofbeldi, stuðning við börn og ungmenni og eflingu samkenndar í samfélaginu.

Stjórnin hefur á árinu lagt áherslu á að tryggja faglega stjórnarhætti, gagnsæi í fjárreiðum og ábyrga ráðstöfun fjármuna. Á árinu 2026 munu starfsreglur stjórnar, úthlutunarreglur og siðareglur sjóðsins verða birtar opinberlega samhliða áframhaldandi uppbyggingu Bryndísarhlíðar.

Fyrir hönd stjórnar Minningarsjóðs Bryndísar Klöru þakka ég ykkur hjartanlega fyrir ómetanlegt framlag og stuðning við starf sjóðsins. Hvert skref sem við tökum saman er skref í átt að betra samfélagi fyrir börnin okkar.

Fyrir hönd stjórnar,
Guðrún Inga Sívertsen
formaður stjórnar

Skilaboð frá foreldrum Bryndísar Klöru

Birgir & Iðunn

Elsku samfélag,

Í sorginni er myrkrið oft yfirþyrmandi, en á þessu ári hafið þið verið ljósið sem vísar okkur veginn. Viðtökurnar sem minningarsjóður elsku Bryndísar Klöru hefur fengið eru okkur dýrmætari en orð fá lýst. Hvert faðmlag, hver kveðja og hvert framlag í sjóðinn hefur sýnt okkur að hjarta Bryndísar Klöru slær enn í gegnum ykkur.

Takk fyrir að hjálpa okkur að breyta sársaukanum í tilgang. Takk fyrir að standa með okkur, ekki bara í sorginni, heldur í voninni um betri og öruggari heim fyrir börnin okkar allra. Við göngum inn í framtíðina með ykkur, staðföst í þeirri trú að kærleikurinn sigri að lokum.

Með kærleik og þakklæti,
Birgir & Iðunn

Riddarar Kærleikans

Hreyfing fólks sem vill lifa í samfélagi þar sem kærleikur ræður ríkjum

Forseti Íslands leiðir samfélagið

Á erfiðum tímum lagði faðir Bryndísar Klöru til að við myndum öll verða riddarar í nafni Bryndísar og gera kærleikann að eina vopni okkar í samfélaginu.

Í kjölfar þessa ákalls varð hreyfingin Riddarar kærleikans til á Bessastöðum að frumkvæði Frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Í öllum samskiptum leggjum við áherslu á að miðla þessum boðskap af heiðarleika og hlýju.

"Gerum kærleikann að eina vopninu"

Verkefnið byggir á virðingu fyrir fórnarlömbum ofbeldis og þeirri von að við getum sameinast um að skapa betra og öruggara samfélag fyrir komandi kynslóðir.

Riddarar Kærleikans

Ógleymanlegt 2025

Hér er einungis brot af mörgum viðburðum og verkefnum ársins

Febrúar 2025

Fyrsta úthlutun styrkja

Sjóðurinn úthlutaði í fyrsta sinn styrkjum og studdi fimm verkefni sem miða að velferð barna og uppbyggingu samfélagsins.

Fyrsta úthlutun styrkja
Febrúar 2025

Góðgerðarvika NFVÍ

Skólafélagar Bryndísar í Verzló halda fjölbreytta viðburði og keppnir. Alls safnaði Góðgerðarráð VÍ 8,7 millj. þennan vetur fyrir MBK.

8.740.937 kr
Apríl 2025

Góðgerðarpizza Domino's

Domino's seldi 4.000 Bryndísarpizzur og sló met í sögu góðgerðarpizzunar en rúmlega 12 millj. höfðu safnast þegar pizzan seldist upp á þriðja degi.

14.519.028 kr
Apríl 2025

Leiksýningar í skólum

Nemendur í Salaskóla og Heiðarskóla voru með styrktarsýningar á leikritum.

Maí 2025

Góðgerðardagur í Kársnesskóli

Nemendur Kársnesskóla söfnuðu fyrir MBK á árlegum góðgerðardegi skólans en það var mikið líf og fjör á þessum fallega degi.

1.273.881 kr
Júní 2025

Kærleiksherferð

Bryndísarhlíð var kynnt í Iðnó á fallegum og áhrifamiklum viðburði sem Riddarar kærleikans stóðu að. Kári og Embla hefja Kærleikshringferð um landið.

Júní 2025

Kærleiks Kristall

Ölgerðin kynnir sumardrykk ársins - Kærleiks Kristalinn. Alls voru seldar 250.000 dósir af þessum fallega og góða drykk þar sem allur ágóði rann til Bryndísarhlíðar.

16.248.056 kr
Ágúst 2025

Reykjavíkurmaraþon

Á Menningarnótt var bleik bylgja kærleika frá morgni til kvölds í nafni Bryndísar Klöru. 358 hlauparar hlupu fyrir Minningarsjóðinn og söfnuðu 2.849 áheitum.

14.300.167 kr
Ágúst 2025

Fótboltadeild Fram - styrktarleikir

Karla- og kvennalið Fram léku sitthvoran styrktarleik og klæddust leikmenn Fram sérhönnuðum treyjum með bleiku merki Minningarsjóðsins.

2.000.000 kr
Ágúst 2025

Einvígið á Nesinu

Á árlegu góðgerðarmóti Nesklúbbsins, léku tíu af fremstu kylfingum landsins í spennandi útsláttarkeppni. Mótið var styrkt af Arion banka og fór fram í frábæru veðri.

1.000.000 kr
September 2025

Kærleikstónleikar og Svölurnar

Góðgerðarfélag flugfreyja og -þjóna styrkti Bryndísarhlíð. Í Miðgarði Skagafirði fóru fram ógleymanlegir Kærleikstónleikar en Sigga og Snorri fengu saman stóran hóp frábærra söngvara til styrktar Bryndísarhlíð.

2.200.000 kr
Desember 2025

Söngur Jóla með Alex Óla

Söngsnillingurinn Alex Óli hélt sína fyrstu styrktartónleika og fékk þessi 12 ára höfðingi með sér Röggu Gísla, Eyjólf Kristjáns, Diljá og fleiri stjörnur.

1.033.728 kr
Desember 2025

Thorvaldsenskonur með risaframlag

Thorvaldsensfélagið fagnaði 150 ára afmæli á árinu og veittu þær Riddurum kærleikans og Minningarsjóðnum 20 milljóna króna styrk til uppbyggingar á Bryndísarhlíð.

20.000.000 kr

Stuðningur á árinu

Minningarsjóði Bryndísar Klöru barst stuðningur úr öllum áttum

83 mkr
Styrkir á árinu
4.000
Bryndísarpizzur keyptar
250 þús
Kærleiks kristaldósir
118 mkr
Safnast frá upphafi
358
Hlauparar fyrir MBK
4.379 km
Hlaupnir fyrir MBK

Verkefni og úthlutanir

Minningarsjóðurinn studdi 5 verkefni á árinu

Bryndísarhlíð
Stóra markmiðið

Bryndísarhlíð

Bryndísarhlíð verður fyrsta úrræði sinnar tegundar á Íslandi en þar munu börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis fá athvarf og aðstoð í öruggu og kærleiksríku umhverfi.

Stefnt er að opnun hússins á árinu 2026 en áætlaður kostnaður við öflun hússins er áætlaður 200 millj. kr.

200 mkr
er áætluð fjárfesting
53%
hefur þegar safnast
Styrkur

Örninn líknarfélag

Styrkur til að styðja við úrvinnslu og sumarúrræði fyrir börn sem hafa misst ástvini, meðal annars með listasmiðjum, sorgarhópum og fjölskylduþjónustu.

Námskeið

Kærleiksnámskeið KFUM & KFUK

Viðburðir á námskeiðum með fræðslu, hópefli og verkefnum sem stuðla að samkennd og sjálfsstyrkingu. Nemendur útskrifast sem „Riddarar kærleikans" og berast boðskap umhyggju og jákvæðra samskipta.

Sýning

Sautján myndir

Klébergsskóli vann 17 myndir tengt kærleika og opnaði skólinn sýninguna 30. ágúst 2025, einu ári frá andláti Bryndísar Klöru. Verkefni mun í framhaldinu færast og verða endurtekið í öðrum skólum.

Herferð

Kærleikshringferð

Kári Einarsson og Embla Bachmann fóru í hringferð um landið á Kærleiksbílnum. Þau tóku fólk tali, ræddu kærleikann og tóku upp myndefni sem dreift var víða.

Fjárhagur minningarsjóðsins

Hugað er að hverri einustu krónu

Rekstur 2025

Styrkir frá einstaklingum 2.835.075 kr.
Styrkir frá fyrirtækjum 2.506.751 kr.
Styrkir af verkefnum og samtökum 77.801.511 kr.
Vaxtatekjur 4.004.187 kr.
Heildar innkoma 87.147.524 kr.

Hvernig er fjármunum varið

Viðburðahald 2.397.075 kr.
Öflun styrkja 1.058.905 kr.
Annar rekstrarkostnaður 512.543 kr.
Úthlutanir (fært beint á eigið fé) 4.338.167 kr.
Hækkun eigin fjár á árinu 78.840.834 kr.

Engar launagreiðslur eru hjá sjóðnum. Stjórn sjóðsins starfar í sjálfboðavinnu.

Eignir í árslok 2025

Eignir námu 114.302.632 krónum í árslok 2025 og hækkuðu um 78.840.834 krónur á árinu. Eignir eru varðveittar á styrktar- og vaxtareikningi hjá Íslandsbanka.
Ársreikningur 2025 var undirritaður af stjórn 16. mars 2026.

Samstarfsaðilar

Ótal fjöldi aðila hefur staðið þétt við bak sjóðsins

Stjórn Minningarsjóðs Bryndísar Klöru

Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands er verndari sjóðsins

👤

Guðrún Inga Sívertssen

Formaður stjórnar
& prókúruhafi

👤

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir

Stjórnarmaður

👤

Guðni Már Harðarson

Stjórnarmaður
og gjaldkeri sjóðsins

👤

Iðunn Eiríksdóttir

Stjórnarmaður
& mamma Bryndísar

👤

Birgir Karl Óskarsson

Stjórnarmaður
& pabbi Bryndísar

Stjórnarhættir og gagnsæi

Sjóðurinn starfar á grundvelli skráðra samþykkta og opinberra reglna

Um sjóðinn

Form Sjálfseignarstofnun, skráð félagasamtök
Kennitala 430924-0600
Heimilisfang Borgartún 27, 105 Reykjavík
Skráning Félaga- og almannaheillaskrá
Skattskylda Undanþegin skv. 4. gr. laga nr. 90/2003
Endurskoðandi KPMG á Íslandi
Verndari Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands

Ársreikningur hvers árs er birtur undirritaður af stjórn og með áritun endurskoðanda.
Undirritaðan ársreikning 2025 má finna hér.